Emilía Klara, Helgi Fannar og Nói.

Barnastarfið hefur undanfarin ár farið í sumafrí hjá TR að frátalinni sumarsyrpunni sem er nú haldin í þriðja sinn. Auk þess verður í ár júlí- og ágústmót haldið með hraðskákformi fyrir börn á grunnskólaaldri.

Ágústmótið verður laugardaginn 15. ágúst í sal TR, Faxafeni 12 og hefst klukkan 10:30. Gera má ráð fyrir að mótinu verði lokið eigi síðar en 12:30.

Tefldar eru sjö umferðir með tímamörkunum 5+3 Mótið er reiknað til hraðskákstiga.

Aldursskipting: Opið öllum f. 2010 og yngri (voru að ljúka 10. bekk og yngri). Það verða tveir flokkar, 3. bekkur og yngri og 4. bekkur og eldri. Krakkar í 3. bekk og yngri með einhver skákstig (at- hrað eða kappskákstig), geta valið um að tefla í eldri flokki ef þau vilja.

Þátttökugjald er 500 krónur fyrir alla og skráning fer fram í gegnum Abler. Ef einhver þarf að afskrá sig má hafa samband í taflfelag@taflfelag.is

Skráningarform birt þegar nær dregur.

- Auglýsing -