Borgarskákmótið er samstarfsverkefni Reykjavíkurborgar og Taflfélags Reykjavíkur fer fram fimmtudaginn 20. ágúst, og hefst kl. 15:30. Líkt og undanfarin ár fer mótið fram í Ráðhúsi Reykjavíkur.

Tefldar verða 7 umferðir með umhugsunartímanum 4 mínútur + 2 sekúndur á leik (4+2). Mótið verður reiknað til hraðskákstiga og er öllum opið. Þátttaka er ókeypis. Skákmenn eru hvattir til að skrá sig sem fyrst í skráningarforminnu til að liðka fyrir mótshaldi.
Þetta er í 41. sinn sem mótið fer fram og er þetta iðulega eitt best sótta skákmót hvers árs. Gera má ráð fyrir að margir af sterkustu skákmönnum þjóðarinnar verði á meðal keppenda. Í fyrra sigraði Ólafur B Þórsson mótið.
Verðlaun:
1.sæti 30.000 kr.
2.sæti 20.000 kr.
3.sæti 10.000 kr.
Verðlaun* skiptast eftir Hort kerfi.
*Aðeins þrír efstu geta unnið til verðlauna
Oddastigaútreikningur í mótinu:
- Bucholz -1
- Bucholz
- Innbyrðis úrslit
- Sonneborn-Berger


















