Fjórir ungir Íslendingar sitja að tafli í Summer Prague Open. Þar eru á ferðinni ungmennin Ingvar Wu Skarphéðinsson (2072), Benedikt Þórisson (2019), Adam Omarsson (2006) og Iðunn Helgadóttir (1837).
Sjöunda umferð fór fram í gær. Enn á ný nær Benedikt góðum úrslitum en hann gerði jafntefli við mexíkanska FIDE-meistarann Roberto Alejandro Avila Bautista (2288). Iðunn vann sína skák, Ingvar Wu gerði jafntefli en Adam tapaði.
Benedikt hefur 4½ vinning, Adam og Iðunn hafa 3½ vinning og Ingvar Wu hefur 3 vinninga.
Áttunda og næstsíðasta umferð hefst kl. 14:15. Benedikt verður í beinni.
Benedikt í beinni frá áttundu umferð
- Auglýsing -















