Níu íslenskir keppendur taka þátt á alþjóðlega mótinu í Split í Króatíu. Stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson (2529) gerði jafntefli í níundu og næstsíðustu umferð í gær gegn makedónska stórmeistarann Nebojsa Nikevic (2316). Vignir hafði vinnings forskot fyrir lokaumferðina, Hann tryggði sér á mótinu með stuttu jafntefli gegn hollenska stórmeistranum Arthur Pipers (2491) í lokaumferðinni sem nú er í gangi.
Við gerum mótinu betri skil þegar öllum skákum er lokið.
Oliver Aron Jóhannesson gerði jafntefli við króatíska stórmeistarann Mladen Palac (2464) í gær.

Tíunda umferð hófst í morgun. Vignir (þegar lokið sinni skák), Hilmir og Oliver eru í beinni.
Tengill á beina útsendingu tíundu umferðar.
Alls taka þátt 162 skákmenn frá 28 löndum. Þar af eru fjórir stórmeistarar. Vignir er stigahæstur keppenda. Íslandsmeistarinn er 15. í stigaröð keppenda og Oliver nr. 18.
Split Open fer fram í Króatíu dagana 6.-14. ágúst. 10 umferðir á 9 dögum (einn frídagur).














