Skákfélag Mosfellsbæjar stendur fyrir skákmóti á bæjarhátíðinni Í túninu heima, þar sem teflt verður um titilinn Skákmeistari Mosfellsbæjar 2026.

Tefldar verða 7 umferðir með tímamörkunum 4 mínútur + 3 sekúndur á leik á mann. Mótið verður reiknað til alþjóðlegra hraðskákstiga.

Staður: Þverholt 2 – fyrir framan Bókasafn Mosfellsbæjar
Dagsetning: Sunnudagurinn 30. ágúst 2026
Tími: Kl. 11:30

Veitingar verða í boði fyrir keppendur frá okkar allra besta Mosfellsbakaríi.

Verðlaun

1. sæti – Innrömmuð ljósmynd af Úlfarsfelli (296 m) + vinningur frá Apótekaranum
2. sæti – Innrömmuð ljósmynd af Reykjafelli (268 m) + vinningur frá Apótekaranum
3. sæti – Innrömmuð ljósmynd af Helgafelli (217 m) + vinningur frá Apótekaranum

Myndirnar eru frá Artiq.is.

Mótið var vel sótt í fyrra þegar um 40 keppendur á öllum aldri og getustigum mættu til leiks. Það væri frábært að sjá enn fleiri í ár!

Núverandi Skákmeistarar Mosfellsbæjar eru FIDE-meistararnir Oliver Aron Jóhannesson og Örn Leó Jóhannsson.

Allir velkomnir – óháð aldri og getustigi. Endilega skráið ykkur sem fyrst!

Skráning: hér

- Auglýsing -