WFM Guðrún Fanney Briem (1816) sat að tafli í Maia í Portúgal dagana 21.-29. ágúst. Hún tók þar þátt í efsta flokki.
Svo fór að Guðrún Fanney tapaði í lokaumferðinni sem fram fór í gær.

Guðrún hlaut 3 vinninga. Van eina skák og gerði fjögur jafntefli. Tapaði fullmörgum skákum.
Frammistaða hana samsvaraði 1936 skáktigum og hækkar hún um 49 stig fyrir hana! Gott að sjá hana á stigarönni aftur!
Alls taka 139 skákmenn frá 32 löndum í flokki (1800+) Guðrúnar og þar af fimm stórmeistarar. Guðrún er næststigalægst keppenda en hún er auðvitað mun betri en stigin gefa til kynna. Mótið fer fram 21.-29. ágúst. Ein umferð á dag. Gamli skólinn.
- Auglýsing -















