Þann 29. ágúst 2026 verða liðin 100 ár frá stofnun Taflfélags Vestmannaeyja, þessa verður minnst með skákmótum og blaðaútgáfu.
Afmælismótin fara fram á opnu svæði í Þekkingarsetri Vestmannaeyja, Ægisgötu 2, 2. hæð. í sama húsnæði og fjölmenn fyrri atskákmót TV.
Sunnudaginn 30. ágúst nk. kl. 13.00-16.00 fer fram hraðskákmót kl. 13.00 og reiknað með mótslokum kl. 16.00.
Tímamörk 5 mín + 3 sek – engin mótsgjöld – 1. verðlaun 30 þús. kr. – 2. verðlaun 20 þús. kr. 3ju verðlaun 10 þús.kr.
Bæði mótin eru reiknuð til skákstiga. Þess má geta að atskákin skilar sér til útreiknings 1. september en hraðskákin 1. október.
Herjólfur siglir sjö ferðir á dag á milli Vestmannaeyja og Landeyjahafnar. Keppendur ofan á landi sem taka þátt í atskákmótinu geta t.d. tekið ferð frá Landeyjahöfn kl. 10.45 laugardaginn 29. ágúst – en þurfa að vera mættir 30 mín. fyrir brottför. Akstur frá höfuðborgarsvæðinu tekur tæpar 2 klst. Heppileg ferð fyrir þá sem taka þátt í atskákmótinu kl. 19.30 frá Eyjum – mæting 30 mín. fyrir brottför. Eingöngu 5 mín. gangur frá Herjólfi að mótstað í Eyjum. Fyrir þá sem taka þátt í báðum mótunum og gista í Eyjum þá fer Herjólfur frá Eyjum kl. 17.00 og 19.30 sunnudaginn 30. ágúst. nk. Nægt gistirými og fjölbreyttir veitingastaðir í Eyjum.
Frétt frá Taflfélagi Vestmannaeyja

















