Fjórum umferðum er lokið á Haustmóti Taflfélags Reykjavíkur og nú er TR-ingurinn ungi Jósef Ómarsson með fullt hús í A-flokki. Iðunn Helgadóttir og Helgi Fannar Óðinsson hafa 3,5 vinning í opna flokknum.

A-flokkur

Enn eru tvær ótefldar skákir í A-flokki og ýmislegt getur og á eftir að gerast í baráttunni á næstu dögum og vikum!

Jósef byrjar vel í A-flokki

Josef lagði kandídatameistarann Jón Árna Halldórsson að velli í 4. umferð en Josef hafði svart. Snemma tafls fékk Josef þægilegri stöðu og náði að setja pressu á kóngsvæng Jóns. Staða hvíts hrundi svo og Josef fann taktík til að einfalda stöðuna í unnið peðsendatafl.

Gauti missti niður sitt fullkomna skor í skák sem rétt er að gleyma, byrjanataflmennskan misheppnaðist algjörlega og Halldór fékk yfirburðatafl eftir örfáa leiki og úrslitin aldrei í hættu.

Bárður lagði Birki og Mikael Bjarki náði í vinning gegn Pétri.

Opinn flokkur

26 skákmenn taka þátt í opna flokknum og stigahæsti keppandinn er Iðunn Helgadóttir.

_D0A6351

Iðunn lagði Dag Sverrisson nokkuð auðveldlega að velli eftir mistök Dags í byrjuninni. Dagur hefur náð fínum úrslitum undanfarið en átti ekki góðan dag að þessu sinni!

Helgi Fannar heldur áfram með eftirtektarverð úrslit og hefur 3,5 vinning eins og Iðunn. Í raun er Helgi einn efstur þar sem Iðunn heldur nú á Ólympíuskákmótið í Úzbekistan.

Önnur úrslit má sjá á chess-results.

Næsta umferð er á föstudaginn 10. september en teflt er nokkuð þétt!

FYRIRKOMULAG:

Tefldar verða níu umferðir í hverjum flokki. Lokuðu flokkarnir eru skipaðir tíu keppendum hver, þar sem allir tefla við alla, en í opna flokknum er teflt eftir svissnesku kerfi. Í lokuðu flokkunum er keppendum raðað eftir skákstigum (miðað er við september stigalista FIDE).

Tímamörk:

Tímamörk eru 90 mínútur á fyrstu 40 leikina. Að loknum 40 leikjum bætast við 15 mínútur. 30 sekúndur bætast við eftir hvern leik alla skákina.

Sjálfkrafa tap dæmist á keppanda sem mætir á skákstað meira en 30 mínútum eftir upphaf umferðar. Í opnum flokki er lágmarksfjöldi þátttakanda 24 og þar af helmingur þeirra með elo-stig.

Í opna flokknum eru leyfðar tvær yfirsetur (bye) í umferðum 1-6 og fæst 1/2 vinningur fyrir hvora yfirsetu. Tilkynna þarf skákstjóra um yfirsetu við upphaf umferðarinnar á undan. Yfirsetur eru ekki leyfðar í lokuðum flokkum.

- Auglýsing -