Hraðskákmót TR fór fram síðastliðinn miðvikudag, og þar með lauk Haustmótinu. Fyrir upphaf móts voru veitt verðlaun til þeirra sem bestum árangri náðu í Haustmóti TR 2026. Jósef Omarsson vann A-flokkinn og varð um leið skákmeistari TR, og Helgi Fannar Óðinsson, 8 ára, vann Opna flokkinn.

Tefldar voru níu hraðskákir í mótinu með tímamörkunum 4+2. Það tóku 33 þátt í mótinu og þar af 11 TR-ingar, eða þriðjungur þátttakenda.
Fátt virtist ætla að stoppa hinn 13 ára Birki Hallmundarson sem átti mót lífs síns og vann mótið ótrúlega örugglega með átta vinningum. Leyfði aðeins tvö jafntefli. Birkir hækkar um 222 hraðskákstig fyrir framistöðu sína. Stefán Steingrímur Bergsson og Arnar Milutin Heiðarsson voru næstir með 6½ vinning.

Þrír TR-ingar fengu síðan sex vinninga, en efstur þeirra á oddastigum varð Guðni Stefán Pétursson sem fær því titilinn Hraðskákmeistari TR í fyrsta sinn. Guðni er vel að titlinum kominn enda hefur hann verið seigur í hraðskákinni í háa herrans tíð.


Mótið á chess-results.
Fleiri myndir frá móti, frá Tómasi Tandra: https://flickr.com/photos/203866670@N05/albums/72177720335776130/

















