Timur Turlov, forseti skáksambands Kasakstans og stofnandi Freedom Holding, var í gær kjörinn nýr forseti Alþjóðlega skáksambandsins (FIDE) á aðalfundi sambandsins í Samarkand.
Turlov, 38 ára, sigraði í annarri umferð með 110 atkvæðum gegn 85 atkvæðum Wadims Rosenstein frá Þýskalandi.
Í fyrstu umferð fékk Turlov 96 atkvæði, Rosenstein 76 og Jan Henric Buettner 20. Enginn náði hreinum meirihluta og því var önnur umferð. Fyrrvarandi heimsmeistari í skák, Viswanathan Anand, verður varaforseti FIDE.
Fyrir síðari umferðina lýsti Pein yfir stuðningi við Turlov með handabandi og þá flestum ljóst hver úrslitin yrðu í seinni umferðinni.

I am grateful to everyone who stood with us, challenged us, debated with us – and to all the new friends we made along the way!
Chess teaches you to remember the whole game, not only the final position.
Now, forward together!#turlovforchess pic.twitter.com/WPWPKOePi2
— Timur Turlov (@TurlovforChess) September 26, 2026
Agreement between Malcolm Pein and Timur Turlov
Suspended teams not to be readmitted to FIDE competitions. TT to speak and vote against this.
CAS decisions to be respected and actioned in all cases.
A maximum of 25% of people from one nationality in management positions within…— Malcolm Pein (@TelegraphChess) September 26, 2026
Turlov tekur við af Arkady Dvorkovich, sem hefur stýrt FIDE frá 2018. Dvorkovich dró framboð sitt til baka eftir að hafa lent á viðskiptaþvingunarlista Evrópusambandsins. Turlov var upphaflega var varaforsetaefni Dvorkovich en ákvað síðar að bjóða sig fram sjálfur þegar ljóst var að Dvorkovich gæti ekki boðið sig fram.
Turlov er fæddur í Moskvu 13. nóvember 1987 en hefur búið í Kasakstan frá 2011 og er kasakstanskur ríkisborgari. Hann afsalaði sér rússneskum ríkisborgararétti eftir innrás Rússlands í Úkraínu árið 2022. Hann hefur verið forseti Skáksambands Kasakstans frá 2023 og stutt gríðarlega við skák, bæði heima fyrir og á alþjóðavettvangi. Hefur gert Skáksamband Kasakstan að stórveldi. Freedom Holding hefur meðal annars styrkt stórmót og keypti ChessBase fyrr á þessu ári.
Í yfirlýsingu eftir kosningarnar þakkaði Turlov skáksamfélaginu fyrir traustið. Hann sagði að sterkt FIDE þýddi sterk landsambönd og fleiri tækifæri fyrir fólk að kynnast skák á grasrótarstigi. Áherslur hans eru meðal annars stafræn umbreyting, styrking minni landsambanda og aukin þátttaka um allan heim. Hann hefur meðal annars talað um meiri stuðning við opin skákmót.
Rosenstein tók tapinu ekkert sérstaklega vel.
Dear Chairman Roberto Rivello,
As a presidential candidate in the 2026 FIDE Presidential election I want to lodge a formal, written objection against the behaviour of another presidential candidate Mr. Timur Turlov and deputy presidential candidate Mr. Malcolm Pein who is…
— Wadim Rosenstein (@WadimRosenstein) September 27, 2026
Turlov er áttundi forseti FIDE og sá fyrsti sem ekki er ekki rússneskur ríkisborgari í meira en í þrjá áratugi.
















