Andri Freyr Björgvinsson er stigahæstur keppenda á Skákþingi Akureyrar.

Fjórða umferð Skákþings Akureyrar var tefld í gær. Í A-flokki töpuðu tveir efstu menn sínum skákum og þéttist hópurinn mjög við það, aðeins munar 1,5 vinningi á efsta og neðsta manni. Úrslit:

Andri-Stefán      0-1

Smári-Karl        1-0

Sigurður-Eymundur 1/2

Hjörleifur-Elsa   1/2

Staðan eftir fjórar umferpir af sjö:

1. Andri Freyr 3;  2-3. Karl og Smári 2,5; 4. Hjörleifur 3; 5-8. Eymundur, Elsa, Sigurður og Stefán 1,5.

Í fimmtu umferð eigast þessi við:

Eymundur-Andri

Karl-Sigurður

Elsa-Smári (verður tefld á þriðjudag)

Stefán-Hjörleifur

Arna Dögg með fullt hús í B-flokki

Í B-flokki hafði Arna Dögg betur í viðureign efstu manna þegar hún lagði Robert að velli í spennandi skák. Önnur úrslit:

Árni-Sigþór        1-0

Ólafur-Emil       (1-0)

Gunnar-Jökull      0-1

Markús-Hulda       1-0

Tobias-Alexía      1-0

Hér hefur Arna tekið forystuna með 4 vinninga. Næstir með 3 vinninga eru þeir Árni Jóhann, Ólafur Jens og Robert.

Í fimmtu umferð á sunnudag tefla þessi:

Arna-Ólafur

Robert-Árni

Sigþór-Markús

Emil-Jökull Máni (hefst kl. 14.30)

Hulda-Tobias

Alexía-Gunnar (verður tefld á þriðjudag)

Nánar á Chess-results, A-flokkur og B-flokkur

Af heimasíðu SA

- Auglýsing -