Það var svolítið sérstök stemning í Breiðabliksstúku síðastliðið þriðjudagskvöld. Þar fór fram lokaumferð Skákhátíðar MótX, eða því sem næst! Í A-flokki var einungis hluti skákanna tefldur vegna sérstakra aðstæðna sem vikið verður að síðar en í B-flokki var teflt á öllum borðum og allt lagt undir.

Þar áttu fjórir skákmenn möguleika á sigri fyrir umferðina og eftir innbyrðis jafntefli tveggja þeirra og glæsilegan sigur Jóhönnu Bjargar varð niðurstaðan sú, að þrír urðu jafnir og efstir. Grípa þurfti því til stigaútreikninga og varð niðurstaðan þessi:

  1. Guðni Stefán Pétursson 5,5 vinninga (26 oddastig)
  2. Pétur Pálmi Harðarson 5,5 vinninga (25,5 oddastig)
  3. Jóhanna Björg Jóhannsdóttir 5,5 vinninga (22,5 oddastig)

Unglingameistari Breiðabliks varð Benedikt Briem sem hlaut fleiri oddastig en jafn marga vinninga og Gunnar Erik Guðmundsson.  Sá síðarnefndi sigraði í keppni 14 ára og yngri.

Við skulum líta á glæsilega teflda skák þar sem ein fremsta skákkona okkar, Jóhanna Björg, stýrði hvítu mönnunum gegn hinum efnilega Arnari Milutin.

Jóhanna Björg Jóhannsdóttir – Arnar Milutin Heiðarsson

Svartur er að vinna skiptamun, en hvítur metur sóknarfærin vel þess virði.

19.Df4! Bxe1 20.Hxe1 f6

Ekki er auðvelt að benda á aðra góða varnarleið fyrir svartan. 20. – Dc7 er svarað með 21.Dh4 og hvíta sóknin er öflug.

21.exf6 Rxf6  (21. – Dxf6 22.Dc7!) 22. Rg5!

Veikleikarnir í stöðu svarts eru miklir og eini leikurinn til að halda e6-peðinu er ekki fallegur.

  1. – Bc8 23.h4 Ha7 24.Ba4 Rh5

Ef 24. – Hc7 þá 25.Rg3 t.d. með hugmyndinni 25. – Bd7 26.h5 gxh5 27.Rxh5! og vinnur

25.Df3! Rxd4

Ef 25. – Dd6 þá 26.Hc1!, ef 25. – Dc7 þá 26.Dxd5! og ef 25. – Dd7 þá 26.Hxe6!

26.De3! Rf5 27.Dxa7 He7 28.Da8 Rf4 29.g3 Rd3 30.Rxe6 Hxe6 31.Hxe6 Rd4 og svartur gafst upp um leið því 32.He8+ er bráðdrepandi.

Frekari úrslit lokaumferðarinnar í B-flokki má sjá hérna:

http://chess-results.com/tnr504996.aspx?lan=1&art=2&rd=7&turdet=YES

Eins og getið var lauslega í inngangi, þá voru einungis fimm skákir tefldar í A-flokki. Fresta þurfti fjórum viðureignum vegna veikinda eins keppanda og utanfarar tveggja á alþjóðlega skákmótið í Kragerö í Noregi. Þannig mun skákhátíðin standa viku lengur en áætlanir gerðu ráð fyrir, því síðasta umferð efstu fjögurra borðanna í A-flokki fer fram næstkomandi mánudagskvöld. Guðmundur Kjartansson og Dagur Ragnarsson eru efstir og jafnir með vinnings forskot á aðra. En sex skákmenn eiga möguleika á sigri og hugsanlegt er að fimm verði jafnir og efstir. Viðureignirnar sem tefldar verða á mánudaginn næsta eru þessar:

Það verður því mikil skákveisla n.k. mánudagskvöld sem hefst kl 19:30. Að sjálfsögðu verða þá allar skákirnar í beinni útsendingu.

Bein útsending: http://live.chess.is/2020/motx/tfd.htm

Úrslit skákanna sem tefldar voru á þriðjudagskvöldið:

Mótstaflan á Chess-Results:

http://chess-results.com/tnr505105.aspx?lan=1&art=2&rd=7&turdet=YES

Gestir eru velkomnir, heitt er á könnunni og kruðerí af bestu gerð!

Hraðskákmót MótX og verðlaunaafhending fara fram þriðjudagskvöldið 25. febrúar kl 19:30.

- Auglýsing -