Ögmundur Kristinsson, Gunnar Freyr Rúnarsson og Vignir Vatnar Stefánsson eru jafnir og efstir með fullt hús eftir þrjá umferðir á Íslandsmótinu í netkappskák. Fjórða umferð hefst kl 14:00 í dag.
Staða efstu manna:
1.-3. Ögmundur Kristinsson 1965 3 vinninga
1.-3. Gunnar GFreyr Rúnarsson 1946 3 vinninga
1.-3. Vignir Vatnar Stefánsson 2296 3 vinninga
4.-5. Páll Snædal Andrason 1897 2,5 vinninga
4.-5. Lenka Ptacnikova 2111 2,5 vinninga
Ekki hefur verið mikið um óvænt úrslit hingað til, en í gær kom á óvart góður sigur Gunnars Freys Rúnarssonar (1946) á Guðmundi Stefáni Gísalasyni (2308).
Gunnar Freyr Rúnarsson 1946 – Guðmundur Stefán Gíslason 2308

Þegar hér var komið við sögu var hvítur farinn að færa sig upp á skaftið og hyggilegast hefði verið fyrir svartan að stoppa það með Ha7.
31. – De8?! 32.De3! (Hvítur er albúinn til sóknar) Da4?! 33.g5 hxg5 34.Rxg5+ Kg8 35.Hxe7 Dxc4?! 36.Rxf7 Núna er hvítur búinn að fjarlægja þrjú af fjórum peðunum umhverfis svarta kónginn og svona varnarlaus náði hann ekki að lifa af lengi og hvítur vann. Nánar hérna.
Skák Páls Snædal Andrasonar (1895) og Lenku Ptacnikova (2111) var athyglisverð.

Palli var búinn að koma sér upp virki. Hvernig kemst svartur í gegn ?
32. – Kf7!
Kóngsókn skal það vera, ekki margt getur komið í veg fyrir för þessa heiðursmanns niður á h4 !
33.He2 Hh8 34.Kg1 Kg6 35.Hee1 Kg5 36.He2 Kh4 37.Hee1 Rh7 38.Re4 Rxe4 39.Hxe4 Rg5 40.He2

Nú er allt tilbúið fyrir niðurrif virkisins og 40. – e4! hefði verið rétti leikurinn t.d. 41.fxe4 hxg4 42.hxg4 Bxg4 43.Rxg4 Kxg4 og svartur stendur til vinnings.
40. – Rxh3+ ?!
Lítur vel út, en hvítur á varnarleið sem hrekur svarta heraflann rækilega til baka.
41.Bxh3 Kxh3 42.Rf1! (með máthótun, væntanlega yfirsást Lenku þessi leikur) Kh4 43.Hh2+ Kg5 44.Rd2 (það gengur allt upp hjá hvítum) Kf6 45.Re4+ Ke7 46.Kf2 Be8 47.Hdh1
Taflið hefur snúist við og skákin endaði að lokum með jafntefli. Nánar hérna.
Eftir hverja umferð eru allar skákir sendar til skönnunar hjá prófessor Kenneth Regan sem er sérfræðingur FIDE í að meta skákir út frá því hvort skákmaðurinn hefur sjálfur verið að tefla eða fengið utanaðkomandi aðstoð. Niðurstöður fyrir fyrstu þrjár umferðirnar eru komnar og hefur allt farið vel fram.
Heimasíða mótsins og skákir mótsins
















