Í gær fór fram svokallað æfingamót á netþjóninum Lichess, en tilgangurinn var að prufukeyra kerfið sem notast verður við í Nethraðskákmóti taflfélaga sem fram fer næstu vikurnar. Mótshaldið gekk hnökralaust fyrir sig og gefur það góða von um að þetta fyrirkomulag muni reynast vel. Kerfið hjá Lichess er mun þolinmóðara en við eigum að venjast í netskákinni, en ekkert mál er að hætta og byrja aftur sem dæmi.
Átta lið eru nú skrá til leiks og enn er hægt að bæta við liðum!
Liðsmenn Breiðabliks, Bolvíkinga og Reykjaness mættu gráir fyrir járnum og gjörsigruðu andstæðinga sína. Lið þeirra var afar vel skipað: FM Guðmundur Stefán Gíslason, FM Snorri Bergsson, Magnús Pálmi Örnólfsson og Hlíðar Þór Hreinsson tefldu fyrir þeirra hönd í gær.
Guðmundur Stefán Gíslason var með bestan árangur einstaklinga í mótinu, en hann náði alls í 32 stig fyrir sitt lið. Lenka Ptácníková var með næst besta árangur einstaklinga eða 28 stig og Snorri Bergsson þriðja besta árangur eða 26 stig.
Blikar áttu alls 4 af 5 stigahæstu keppendum móstins
Lokastaða í liðakeppninni (liðin voru ekki fullskipuð)
- Breiðablik, Bolungarvík og Reykjanes 110 stig
- Skákfélag Akureyrar 80 stig
- Huginn 52 stig
- Taflfélag Garðabæjar 51
- Miðbæjarskák 40
- Skákgengið 36
- Taflfélag Reykjavíkur 31
- Víkingaklúbburinn 17
Nethraðskákkeppni taflfélaga hefst með formlegum hætti á morgun, laugardag kl. 13:00. Teflt verður í 90 mínútur með tímamörkunum 3+2.

















