Á morgun, laugardag kl. 13, fer 1. umferð Nethraðskákkeppni taflfélaga fram á vefsíðunni lichess.org.
Tengill á 1. mótið: https://lichess.org/tournament/AczQ0y6z
8 lið eru skráð í keppnina og enn er mögulegt að bæta fleirum við. Keppendur fara á tengilinn að ofan, smella á nafn félags sem þeir tefla fyrir og til hægri sprettur upp gluggi með tengli á síðu félagsins. Þar þurfa keppendur að biðja um aðgang að liðinu, því næst þarf að fara aftur í mótið og smella á join.
Heimilt er að mæta með eins marga liðsmenn og liðin vilja, en árangur 6 efstu gildir sem stigafjöldi félagsins.
Reglur keppninnar
- Keppnin er liðakeppni sem er tefld með svokölluðu „Team Battle“ kerfi á vefsíðunni Lichess.org. Hægt er að tefla með tölvu, síma eða spjaldtölvu. Staðan í mótinu á hverjum tíma sést best með því að nota tölvu.
- Tefldar verða 5 umferðir, alla laugardaga kl. 13:00 – 14:30. Hver umferð (hvert mót) er 90 mínútur.
- Reiknuð verða út GP stig eftir hverja umferð, en efsta liðið fær 12 stig, næstu 10, 8, 7, 6, 5, 4, 3, 2, 1. Liðið sem er með flest stig eftir lokaumferðina þann 16. maí n.k. vinnur. Verði lið efst og jöfn, gilda samanlögð stig liða úr öllum umferðunum 5.
- Keppendur þurfa að ganga í sitt félag á Lichess. Að því loknu geta keppendur skráð sig í mótið sjálft, en tengill á mótið verður á skak.is og einnig birtur á F-B síðunni „Íslenskir skákmenn“ áður en umferðir hefjast.
- Tefld er hraðskák með tímamörkunum 3+2. Parað er eftir svokölluðu „Arena kerfi“ og fá keppendur 2 stig fyrir sigur og eitt fyrir jafntefli. Fleiri stig fást fyrir að vinna margar skákir í röð. Keppendur eru ekki paraðir gegn eigin liðsmönnum, aðeins gegn öðrum félögum.
- Stigagjöfin er þannig: Bónusstig fást fyrir að vinna margar skákir í röð. Jafnframt er hægt að smella á „berserk“ takka áður en leik er leikið í skákinni, en þá fær keppandi aðeins 90 sekúndur á alla skákina og engan viðbótartíma. Berserk gefur aukastig fyrir skákina.
- Liðum er frjálst að stilla upp eins fjölmennu liði og þau geta, en stig 6 hæstu í hverju liði gilda sem heildarstig liðsins. Allir liðsmenn gegna jafn mikilvægu hlutverki, en kerfið leitast við að para keppendur með svipuð stig.
- Keppnin er ekki hin formlega „Hraðskákkeppni taflfélaga“. Þessi keppni er ný og var skipulögð til þess að bjóða upp á skemmtilegar nýjungar í mótaþurrð vorsins. Sigurvegarinn hlýtur sæmdarheitið „Nethraðskákmeistari taflfélaga“.
- Það er með öllu óheimilt að fá aðstoð frá öðrum keppendum eða skákreiknum. Lichess skannar allar skákir. Vakni grunur um um óheimila aðstoð þá er til staðar sjálfvirkur hugbúnaður sem útilokar keppendur.
- Keppendur skulu tefla undir réttum nöfnum. Heimilt er að nota gælunafn (notendanafn) en rétt og fullt nafn skal koma fram í prófíl keppenda á Lichess. Einfalt er að stilla það með því að smella á notendanafnið uppi í hægra horninu, þar á profile og þar inni er tannhjól sem er hægt að smella á. Liðsstjórum ber að gæta að því að keppendur tefli undir fullu nafni.
- Gangi ykkur vel og munið að gæta að háttvísí!
- Auglýsing -














