Magnús Carlsen (2881) hefur tryggt sér keppnisrétt í úrslitakeppni eigin boðsmóts sem í gangi er á Chess24. Fyrri hluti sjöttu og næstsíðustu umferðar fór fram í gær. Heimsmeistarinn vann Ian Nepomniachtchi (2778) eftir bráðabana í gær og fær 2 stig gegn 1 einu stigi Nepo. Carlsen var kominn með tapað með hvítu eftir aðeins sjö leiki í fyrstu skákinni eftir afar barnalega taflmennsku.
Alireza Firouzja (2703) er orðinn sjóðheitur eftir slaka byrjun og vann Anish Giri (2731) 2½-1½ í gær.

Magnús er efstur með 13 stig og hefur tryggt sér keppnisrétt í úrslitakeppninni. Nepo, Firouzja og Giri eru allir úr leik en MVL heldur í veika von. Hann þarf að vinna Caruana og Nakamura í lokaumferðunum tveimur og treysta jafnframt á hagstæð úrslit.
Síðari hluti sjöttu og næstsíðustu umferðar fer fram í dag. Þá mætast annars vegar Hikaru Nakamura (2829) og Ding Liren (2836) og hins vegar Fabiano Caruana (2773) og Maxime Vachier-Lagrave (2860).
Nánar á Chess24.
Taflmennskan hefst kl. 14 alla daga. Tímamörkin eru 15+10.














