EVRÓPUMÓTIÐ Í NETSKÁK – 1000 – 1400 Undanrásir

    0
    558
    EM í netskák hefst 16. maí. Teflt verður í fimm styrkleikaflokkum.
    Hvenær:
    16. maí, 2020 @ 15:00
    2020-05-16T15:00:00+00:00
    2020-05-16T15:15:00+00:00

    Skáksamband Evrópu (ECU) heldur Evrópumótið í netskák sem fram fer 16.-31. maí næstkomandi á Chess.com.

    Laugardaginn 16. maí kl . 15 fara fram undanrásir í flokki skákmanna með 1000-1400 stig.

    Sunnudaginn 17. maí kl. 15 fara fram úrslit í sama flokki.

     

    Skráning fer fram á vefsíðu ECU. Skráningarfrestur er þar til tveim dögum fyrir upphaf hvers styrkleikaflokk.


    • Mótið verður teflt í fimm mismunandi styrkleikaflokkum (miðað við atskákstig FIDE í apríl 2020).

      • a) 1000 – 1400 – 16. og 17. maí
      • b) 1401 – 1700 – 19. og 20. maí
      • c) 1701 – 2000 – 22. og 23. maí
      • d) 2001 – 2300 – 25. og 26. maí
      • e) 2300+ – 29.-31. maí
      Helstu upplýsingar um dagskrá, feril mótsins og hvað felst í verðlaununum.

      Allir skákmenn sem hafa íslenskt FIDE-ID hafa rétt á þátttöku.Þeir sem ekki hafa en vilja taka þátt geta sótt um slíkt í netfangið skaksamband@skaksamband.is og geta þá teflt í a-flokki (ELO 1000-1400). Gefa þarf upp fullt nafn og kennitölu.

      Skráning fer fram á vefsíðu ECU. Skráningarfrestur er þar til tveim dögum fyrir upphaf hvers styrkleikaflokk. Skráningarfrestur er t.d. til kl. 15, 14. maí fyrir fyrir A-flokkinn (1000-1400). Þátttökugjöld eru 5 evrur (um 800 kr.).

      Eftir skráningu verða skákmennirnir meðlimir í ECU Online Central Club og viðeigandi styrkleikaflokki. Mæta þarf tímalega á Chess.com fyrir upphaf umferðar.

      Teflt verður eftir svissneska kerfinu í öllum styrkleikaflokkum. Á degi 1 keppa allir sjö umferðir og a.m.k. 250 efstu komast í úrslitakeppni sem fram fer degi síðar. Þar eru tefldar átta umferðir. 100 efstu í úrslitakeppninni komast svo upp í næsta flokk.

      Tímamörk í hverjum flokki verða 10+2.

      Dagskráin

      • 1000-1400 Undanrásir – 16. maí, kl. 15
      • 1000-1400 Úrslit – 17. maí kl. 15
      • 1401-1700 Undanrásir – 19. maí kl. 16
      • 1401-1700 Úrslit – 20. maí kl. 16
      • 1701-2000 Undanrásir – 22. maí kl. 16
      • 1701-2000 Úrslit – 23. maí kl. 15
      • 2001-2300 Undanrásir – 25. maí kl. 16
      • 2001-2300 Úrslit – 26. maí kl. 16
      • 2300+ Undanrásir – 29. maí kl. 16
      • 2300+ Undanrásir – 30. maí kl. 15
      • Úrslit 31. maí kl. 15 – 29.-31. maí

      Í flokki skákmanna með 2300 verða tefldar tvennar undanrásir. Í úrslitakeppnina komast þeir 12 sem flesta vinninga fá samtals ásamt fjórum boðsgestum.

      Verðlaun

    - Auglýsing -