Hverfisgata 47
101 Reykjavík
Ísland

Afmælisskákmót Róberts Lagerman 2020.
Vinaskákfélagið mun halda sitt venjubundna sumarskákmót sem að þessu sinni verður Afmælisskákmót Róberts Lagerman mánudaginn 27 júlí 2020, kl: 13, í Vin að Hverfisgötu 47. Tefldar verða 6 umferðir með 4 + 2 mínútur á skák.
Ef tveir verða efstir og jafnir, þá keppa þeir til úrslita um sigurinn í „bráðabana“, þar sem hvítur hefur 5 mínútur og svartur 4 mínútur og nægir svartur jafntefli til að vinna.
Keppt verður um það hver verður Hraðskákmeistari Vinaskákfélagsins 2020.
Skákdómari verður Róbert Lagerman, en skipuleggjari er Hörður Jónasson.
Mótið verður reiknað til hraðskákstiga.
Í hléi verður boðið upp á kaffi og 60 manna afmælisköku.
Góð verðlaun verða í boði.
Þar á meðal kemur Tómas Ponzi með tómata, salat og hvítlauk, en hann er einn besti tómata ræktarinn hér á landi.
Þið getið skráð ykkur á mótið á gula kassanum hér á skak.is eða í skráninguna hér fyrir ofan.
Einnig getið þið skráð ykkur á staðnum.
Til að sjá hverjir hafa skráð sig: https://docs.google.com/spreadsheets/d/e/2PACX-1vTqShkQRPU1XKk8E0RgWCYtpNmSyyYTS0cFc1My0-ZTKM-hnES3ivbbqlG8wKVPSsBuzSvelgz2h-hI/pubhtml
Allir velkomnir!!









