Vignir Vatnar handsalar félagaskiptin við Halldór Grétarsson formann Skáksambands Breiðabliks, Bolungarvíkur og Reykjaness.

Hinn efnilegi skákmaður og FIDE meistari Vignir Vatnar Stefánsson er nýr félagsmaður Skáksambands Breiðabliks, Bolungarvíkur og Reykjaness.

Í tilkynningu frá félaginu segir:

Það er mikið fagnaðarefni fyrir félagið að fá þennan efnilega skákmann sem hefur heillað íslenska skákáhugamenn með hugmyndaríkri og taktískri taflmennsku frá því að fyrst sást til hans í Torgmóti Fjölnis.

Þegar Vignir Vatnar var þrettán ára þá náði hann þeim merka áfanga að verða yngsti íslenski skákmaðurinn til að ná yfir 2400 skákstig. 

Hann er hluti af sigursælli sveit Hörðuvallaskóla sem hefur unnið marga sigra á undanförnum árum. Núna sameinast þeir skólafélagar í sama taflfélaginu og væntum við að það leiði af sér skáklegar uppgötvanir og áframhaldandi framfarir þeirra í undraheimum skákarinnar.

Við bjóðum Vigni Vatnar velkominn í hópinn !

- Auglýsing -