Ólympíumótinu í netskák verður framhaldið í dag kl. 14. Í dag mætir íslenska liðið sterkum liðum Serba, Tyrkja og Dana sem öll eru umtalsvert stigahærri en íslenska liðið.
Ýmsar leiðir eru til að fylgjast með íslenska liðinu.
- Skákskýringar Björns Ívars (hefjast kl. 13:50)
- Vefútsending af keppendum
- Followchess (mælt er einnig appinu/smáforritinu)
Tengill á Chess.com fyrir allar viðureignir íslensku liðanna verður birtur á íslenskum skákmönnum á Facebook – um 5-10 mínútum fyrir hverja umferð.
Tengill á 4. umferð gegn Serbum.
Teflt er í skákhöll TR, Faxafeni 12. Áhorfendur eru velkomnir á skákstað en minnt er á reglur um sóttvarnir og tveggja metra regluna.
- Auglýsing -















