Stórmeistarinn Helgi Áss Grétarsson gerði jafntefli í næstsíðustu umferð á Benidorm Chess Open 2026 í dag. Helgi hafði hvítt gegn ungum spænskum CM, viðureign sem á pappír hefði átt að vera nokkuð vænleg fyrir Helga. Sá spænski var hinsvegar ekkert í uppgjafargír og tók fast á móti í byrjun gegn Helga og setti hann í ákveðna varnastöðu snemma í miðtaflinu.
Helgi hefur oft séð það svart með svörtu mönnunum og nýtti þá reynslu að einhverju leiti til að verjast árásum þess spænska. Þegar líða tók á taflið náði Helgi að rétta skútuna en aldrei meira en það…vinningsmöguleikarnir voru ekki nægjanlegir en jafnteflið alltaf í hendi eftir að Helgi náði tökum á stöðunni.
Niðurstaðan er því sú að Helgi hefur 6,5 vinning af 8 og er enn í efsta sæti en indverskri stórmeistarinn Babu Lalit hefur náð honum að vinningum með því að leggja Miroslav Baturin-Vinogradov að velli. Þessi úrslit þýða einfaldlega að Helgi hefur hvítt gegn Indverjanum í lokaumferðinni en sá indverskri er margreyndu keppnismaður. Ritstjórn sér fyrir sér tvær sviðsmyndir. Önnur sviðsmyndin er að sá indverskri jarmi eins og stunginn grís og vilji jafntefli sem ætti að tryggja skipt efsta sæti fyrir þá báða. Líklegri sviðsmyndin er sú að Helgi, með hvitt, vilji sækja sigur á mótinu og reyna á taugar þess indverska!
Lokaumferðin hefst klukkan 9:30 að íslenskum tíma og allt undir!
- Beint á Lichess
- Paranir og staða.
Um mótið:
Helgi er með 2405 Elo-stig og er fjórði í styrkleikaröð A-flokksins. Fyrir ofan hann eru rúmenski stórmeistarinn Felix-Antonio Ilinca (2507), Norðmaðurinn Kristian Stuvik Holm (2500) og Indverjinn Lalit Babu M R (2489).
Benidorm Chess Open fer fram dagana 25. október til 1. nóvember á Hotel Meliá Benidorm. Tefldar eru níu umferðir eftir svissnesku kerfi og eru tímamörkin 90 mínútur á skákina auk 30 sekúndna viðbótar fyrir hvern leik. Mótið er FIDE-reiknað og gefur möguleika á alþjóðlegum áföngum.
Mótinu er skipt í tvo meginflokka. Open A er ætlaður skákmönnum með yfir 1800 Elo-stig en Open B er fyrir keppendur undir 2000 stigum. Heildarverðlaunafé mótshátíðarinnar er rúmlega 25 þúsund evrur.
Helgi teflir að sjálfsögðu í sterkari flokknum og er einn af fjórum stigahæstu keppendum mótsins.
Fyrsta umferðin fór fram í gær 25. október en önnur umferð hófst nú rétt áðan.
Dagskrá mótsins er þétt:
- 25. október kl. 17:30 – 1. umferð
- 26. október kl. 16:30 – 2. umferð
- 27. október kl. 10:00 – 3. umferð
- 27. október kl. 16:30 – 4. umferð
- 28. október kl. 16:30 – 5. umferð
- 29. október kl. 16:30 – 6. umferð
- 30. október kl. 16:30 – 7. umferð
- 31. október kl. 16:30 – 8. umferð
- 1. nóvember kl. 9:30 – 9. og síðasta umferð














