Færeyska meistaramótinu í skák lauk fyrir skemmstu. Mótið átti upphaflega að fara fram um páska en var frestað vegna Covid-19 en það tókst að halda núna í október-nóvember. Átta skákmenn tefldu í landsliðsbólki. Högni Egillstoft Nielsen (2396) og hinn ungi og efnilega Luitjen Akeselsson Apol (2126) komu jafnir í mark. Teflt var til þrautar með skemmri umhugsunartíma og þar hafði Högni betur.
Nánar má lesa um mótið á heimasíðu færeyska skáksambandsins.
- Auglýsing -
















