Íslandsmót ungmenna fór fram síðustu helgi og tóku um 40 iðkendur Skákdeildar Breiðabliks þátt á mótinu.
Stóðu þau sig frábærlega og náðu alls 12 verðlaunum og þar af 5 Íslandsmeistaratitlum. Keppt var í flokkum U8, U10, U12 og U14/U15.
Myndir af verðlaunahöfum Breiðabliks má finna á heimasíðu skákdeildarinnar.
- Auglýsing -













