EM taflfélaga í netskák – kvennaflokkur hefst á laugardaginn. Tvö íslensk skákfélög, Skákfélagið Huginn og Skákdeild Fjölnis taka þátt í mótinu. Liðin tefla í undanrásariðlum sem fram fara 19. og 20. desember nk.
Flestar sterkustu skákkonur Evrópu taka þátt í mótinu.
Lið Hugins sem teflir í c-riðli skipa
- Lenka Ptácníková (2130)
- Hallgerður Helga Þorsteinsóttir (2009)
- Jóhanna Björg Jóhannsdóttir (1935)
- Elsa María Kristínardóttir (1837)
- Guðfríður Lilja Grétarsdóttir (1984)
Liðsstjóri er Hjörvar Steinn Grétarsson.
Lið Hugins er sjöunda sterkasta af átta liðum. Sterkasta liðið er hið rússneska UGRA en það skipa meðal annars rússnesku landsliðskonurnar Natalija Pogonina og Olga Gyria.
Nánar á Chess-Results.
Lið Fjölnis teflir í b-riðli og er það veikast átta liða. Lið Fjölnis skipa
- Tinna Kristín Finnbogadóttir (1843)
- Hrund Hauksdóttir (1819)
- Lisseth Acevedo Mendez (1845)
- Nansý Davíðsdóttir (1895)
- Sigríður Björg Helgadóttir (1641)
Liðsstjóri er Helgi Árnason.
Í f-riðli tekur meðal Kyiv-skákklúbburinn þátt og fyrir þann klúbb tefla meðal annars Muzychuk-systurnar, Maria og Anna og Anna Ushenina.
Nánar á Chess-Results.
Taflmennskan hefst kl. 13:30 á laugardaginn.
Tvö efstu liðin úr hverjum flokki komast í úrslitakeppni sem fram fer á mánu- og þriðjudag.
Nánar um mótið á heimasíðu ECU.
















