Stórmeistarnir og feðgarnir. Mynd: RS

Helgi Áss Grétarsson (2503) var í miklu stuði á Hraðskákmóti Reykjavíkur sem fram fór í gær. Helgi vann 11 skákir sínar! Feðgar urðu í öðru og þriðja sæti. Sonurinn, Örn Leó Jóhannsson (2246) varð annar með 10 vinninga, vann alla nema Helga Áss! Pabbinn, Jóhann Ingvason (1988) varð þriðji með 9 vinninga, tapaði aðeins fyrir stórmeistaranum og syninum! Vignir Vatnar Stefánsson (2404), sigurvegari Skákþings Reykjavíkur, mátti sætta sig við fjórða sætið.

Lokastöðuna má finna á Chess-Results.

- Auglýsing -