Skáksamband Íslands veitti í dag Tómasi Rasmus heiðursviðurkenningu FIDE fyrir skákstarf í skólum.

Tómas Rasmus hefur komið að skákkennslu og skákþjálfun allt frá árinu 1979. Á þeim tíma hefur hann komið víða við, kynnt skák fyrir fjölda ungmenna og byggt upp skákstarf frá grunni.
Fyrsta starfsár sitt, 1979–1980, starfaði Tómas við Varmalandsskóla í Borgarfirði. Frá 1980 til 1996 starfaði hann við Barnaskólann á Eyrarbakka og Stokkseyri. Á þeim tíma hafði hann jafnframt umsjón með sýslu- og kaupstaðaskákmótum sem og kjördæmismótum á Suðurlandi. Hann vann einnig að verkefnum með Skákskóla Íslands á Suðurlandi.

Á árunum 1997–1998 starfaði Tómas við Flúðaskóla og frá 1999 til 2001 við Ljósafosskóla. Árið 2002 hóf hann störf við Salaskóla í Kópavogi, þar sem hann starfaði til ársins 2016.

Undir stjórn Tómasar varð Salaskóli Heimsmeistari grunnskóla í skák ásamt því að landa mörgum öðrum glæstum sigrum.

Samhliða skákkennslunni skipulagði Tómas innanbæjarskákmót í grunnskólum Kópavogs og tók þátt í uppbyggingu Skákakademíu Kópavogs.

Árið 2018 kenndi Tómas skák við Húsaskóla í Reykjavík en var svo fenginn til starfa í Helgafellsskóla í Mosfellsbæ árið 2020 með það að markmiði að byggja upp skákmenningu í nýjum skóla. Þar starfaði hann fram til haustsins 2025, þegar veikindi bundu enda á frekari störf hans við skákkennslu.
Tómas hefur helgað stóran hluta ævi sinnar skákkennslu, skákþjálfun og uppbyggingu skákstarfs meðal barna og unglinga. Margir af nemendum Tómasar hafa skipað sér í fremstu röð íslenskra skákmeistara.

Á löngum starfsferli hefur Tómas haft mótandi áhrif á nemendur sína með jákvæðu viðhorfi. Einstakur hæfileiki Tómasar til þess að kveikja áhuga ungmenna á skák og nálgast nemendur sína af mikilli virðingu og einlægri alúð gerir það að verkum að hann er sannarlega vel að heiðursviðurkenningu FIDE kominn.
Skáksamband Íslands þakkar Tómasi fyrir allt hans blómlega starf í þágu skákhreyfingarinnar á Íslandi.















