Keppni hófst í kvöld í öllum deildum á Íslandsmóti skákfélaga 2026-2027 en keppnin fer að þessu sinni fram í Menntaskólanum við Hamrahlíð. Úrvalsdeildin hóf keppni á fimmtudaginn og tefldu þeir aðra umferð í kvöld á meðan aðrar deildir tefldu 1. umferð. KR eru efstir í Úrvalsdeild eftir kvöldið.
Úrvalsdeild
KR mættu TG í kvöld en báðar sveitir unnu sigur í fyrstu umferðinni. Skemmst er frá því að segja að KR unnu öruggan sigur og hafa tekið forystu í Úrvalsdeildinni. TR-ingar urðu að lúta í dúk gegn ferskum Fjölnismönnum með minnsta mun, eilítið óvænt. Loks vann Breiðablik öruggan sigur gegn Íslandsmeisturunum úr Vestmannaeyjum þrátt fyrir að Vignir hefði sprengt sig á efsta borði gegn Birni Þorfinnssyni.
1. deild
Víkingaklúbburinn stimplaði sig vel inn með 6-0 sigri í kvöld. Þeir virðist lang líklegastir að fara upp um deild en Akureyringar reyna hvað þeir geta að halda í við þá en þeir unnu 5-1 gegn Dímon.
2. deild
TR c-sveit og Skákfélag Akureyrar b-sveit virðast hafa sterkustu liðin í þessari deild og unnu bæði 5,5-0,5 sigra í 1. umferðinni í kvöld.
3. deild
SSON unnu stórsigur í 1. umferðinni 5,5-0,5 og má búast við þeim í baráttu við 64 Mislynda Biskupa um að vinna þessa deild.
4. deild
Haukar unnu 6-0 sigur og virðast ansi sterkir í þessari deild þó erfitt sé að spá of mikið í spilin svona snemma.
Tvær umferðir verða tefldar á morgun, laugardag og hefjast þær klukkan 11:00 og 17:30.
- Myndir frá mótinu á Flickr (Tómas Tandri)
- Mótið á Chess-Results
- Beinar útsendingar á LiChess
- Beinar útsendingar á Chess.com
















