Íslandsmóts skákfélaga 2026-2027 hófst formlega í kvöld þegar fyrsta umferð Úrvalsdeildar var tefld í húsnæði Taflfélags Reykjavíkur. Keppnin heldur áfram á morgun kl. 19 í Menntaskólanum við Hamrahlíð og þá hefst keppni í öllum deildum (1.-4. deild).
Einungis ein viðureign var á DGT borðum en það var viðureign Breiðabliks og TR en þar voru að mætast tvær stigahæstu og þéttustu sveitirnar í keppninni í ár! Breiðablik skartaði tveimur efstu borðum íslenska landsliðsins auk þess að hafa norskan landsliðsmann og sterkan tyrkneskan meistara innan sinna raða. Fyrirfram hefði mátt búast við að neðstu fjögur borðin myndu hafa úrslitaáhrif í þessari viðureign! Þar mættust reyndustu liðsmenn TR gegn unglingahreyfingu Breiðabliks!
Fyrsta skákin til að klárast í viðureigninni var hjá Margeiri gegn Birki Ísak. Birkir réttilega unnið sig upp í að vera talinn einn helsti byrjanasérfræðingur landsins og náði hann fljótlega í miðtaflinu að hrifsa frumkvæðið gegn Margeiri. Líklega hljóp á snærið hjá TR þegar Birkir bauð Margeiri jafntefli í 19. leik en þá hafði svartur betra tafl og virðist vinna a4-peðið og einungis svartur getur teflt til vinnings.
Jafntefli með svörtu þó fín úrslit í stóra samhenginu í liðakeppni og hagur Blika virtist vænkast þegar norski landsliðsmaðurinn Kaasen lagði Domalchuk-Jonasson að velli.
Á áttunda borði reyndist nokkur klassamunur. Heimsmeistari sveina 1977 hefur haft meiri tíma undanfarið til að helga sig skáklistinni og vann nokkuð hreinan tæknisigur með svörtu mönnunum í þessari skák.
Reynsluboltinn Þröstur Þórhallsson kom TR yfir með sigri á 6. borði, svörtu mennirnir að reynast TR vel! Galin tímanotkun hvíts í 24. leik kom í bakið á Blikum. Bárður hafði rétt rúmar 10 mínútur en eyddi þeim nánast öllum og þurfti að tefla á viðbótartíma fram að 40. leik. Slíkt er ekki vænlegt til vinnings og staða svarts styrktist með hverjum leik uns Þröstur knúði fram uppgjöf.
Aðrar skákir enduðu með skiptum hlut og því réðist viðureignin á 3. borði þar sem Tyrkinn Kilic með svart þjarmaði lengst af skákar að Helga með hvítt. Upp kom hróksendatafl þarsem svartur hafði umframpeð en Helgi reyndist vandanum vaxinn, hélt jafnteflinu og tryggði TR mikilvægan sigur sem gæti reynst mikilvægur þegar talið verður upp úr kössunum á næsta ári!
Niðurstaðan, sigur með minnsta mun hjá TR í þessum toppslag.

Fjölnismenn og KR-ingar hafa verið í slagnum um titilinn undanfarin ár en bæði lið mættu töluvert veikari til leiks en undanfarin ár. KR-ingar voru vissulega þéttari að mörgu leiti en úrslitin 2.5-5.5 komu flestum í opna skjöldu. Sterk byrjun hjá KR-ingum!

Flestar spár höfðu TG og TV í baráttunni um að falla ekki úr Úrvalsdeildinni. Íslandsmeistararnir 2026, á afmælisárinu, mæta ekki jafn sterkir til leiks og í fyrra og ljóst að hér var lykilviðureign!
Leikar fóru þannig að TG náði í 5-3 sigur og munaði þar mest um góða vinninga á efstu borðum þar sem sænsku liðsmenn Garðabæinga skiluðu sínu svo um munaði. Hér gæti líka verið um að ræða mikilvæga viðureign þegar „atkvæðin“ verða talin í lokin!

Keppni hefst í öllum deildum á morgun í MH og þá hefst veislan af alvöru!
- Myndir frá mótinu á Flickr (Tómas Tandri)
- Mótið á Chess-Results
- Beinar útsendingar á LiChess
- Beinar útsendingar á Chess.com
















