Víkingaklúbburinn og Taflfélag Garðabæjar minna á Opna Páskamót Víkingaklúbbsins og TG fyrir yngri flokk (keppendur fæddir 2005 eða yngri) í dag miðvikudag 31. mars kl 18.00.
Telfdar verða 7. umferðir með umhugsunartímanum 4 plús 2. Þrír efstu keppendur fá páskaegg (nr 6, 5 og 4) og þrír efstu Víkingar og þrír efstu úr Taflfélagi Garðarbæ.
Sérstök aukaverðlaun, efstur U10 fær páskaegg nr. 4, efsta stúlkan nr 4 og efstur U1000 chess.com eló fær páskaegg nr. 4. Minnt er á í þetta sinn teflum við ekki með arena fyrirkomulagi, eins og í undanförunum mótum. Allar skákirnar hefjast því á sama tíma.
Þeir keppendur sem ekki hafa telft á mótum Víkingaklúbbsins á chess. com, þurfa að smella á þennan link: til að komast inn í grúbbuna:
Síðasta mánudag var fyrra páskamótið, telft arenamót með tímamörkunum 4 plús 2. Sigurvegari varð Birkir Hallmundarson, annar varð Ingvar Wu og þriðji varð Adam Omarson. 22 keppendur tóku þátt.
- Auglýsing -