Alþjóðlegi meistarinn Jón Viktor Gunnarsson (2414) er efstur með 5½ að loknum sex umferðum á minningarmóti Gylfa Þórhallssonar sem fram fer í Hofi á Akureyri. Hann lagði meðal annars stórmeistarann Jóhann Hjartarson (2469) að velli í dag.

Davíð Kjartansson (2357) er í 2.-5. sæti ásamt þremur ungum skákmönnum af norðlenskum uppruna; Jóni Kristni Þorgeirssyni (2123) Gauta Páli Jónssyni (2008) og Símoni Þórhallssyni (2067).
Myndir frá mótinu, teknar af Sigurði Arnarsyni, má finna á íslenskum skákmönnum á Facebook.
Röð efstu manna:
Á morgun verða tefldar fjórar umferðir. Alls eru tefldar tólf umferðir.
- Auglýsing -















