EM í netskák – undankeppni um sæti á Heimsbikarmótinu hefst í dag. Tveir íslenskir fulltrúar taka þátt; stórmeistararnir Guðmundur Kjartansson (2500) og Helgi Áss Grétarsson (2441).
Taflmennskan hefst kl. 12 og teflt er á Tornelo-vefnum. Þeir félagarnir tefla í húsnæði Skáksambands Íslands undir eftirliti skáktjórans Jons Olav Fivelstad og vefmyndavéla.
Teflt er eftir útsláttarfyrirkomulagi og til að komast á heimsbikarmótið þarf sigur í þremur tveggja skáka einvígum þar sem tefld er kappskák. Verði staðan 1-1 verður teflt til þrautar með styttri umhugsunartíma.
Í fyrsta einvíginu, sem fram fer 24. og 25. maí, verða viðureignir íslensku keppendanna sem hér segir: Slá menn á skákirnar fara þeir beint á beinan tengil á Chess24.
- GM Helgi Áss Grétarsson (2441) – GM Aleksandr Shimanov (2597), Rússlandi
- GM Guðmundur Kjartansson (2500) – GM Stelios Halkias (2567), Grikklandi
Helstu tenglar
- Pörunartré mótsins
- Beinar útsendingar á Chess24
- Mótið á Tornelo
- Mótið á Chess-Results
- Mótsreglur mótsins
- Auglýsing -

















