Menningarfélagið Miðbæjarskák mun halda Skákmót Máls og Menningar laugardaginn 3. júlí næstkomandi klukkan 14. Tefldar verða níu umferðir með tímamörkunum 3+2. Mótið er reiknað til alþjóðlegra hraðskákstiga. Eftir fimm umferðir verður gert neysluhlé þar sem mönnum býðst að væta kverkarnar fyrir lokaátökin. Ekkert þáttökugjald er í mótið. Skráning miðar við 30 manns og lýkur henni er þeim fjölda er náð.
Mótið er hið fyrsta sem Miðbæjarskák heldur í miðbæ Reykjavíkur eftir að Covid heimsfaraldurinn hélt skákmótahaldi í heljargreipum.
Miðbæjarskák þakkar Mál og Menningu kærlega fyrir samstarfið, en þar eru nú nýir rekstraraðilar með tónleika nánast upp á hvert einasta kvöld. Glæsilegar aðstæður eru fyrir taflmennsku, algjörlega í anda þess sem Miðbæjarskák hefur boðið upp á undanfarin þrjú ár.
Skráningu er lokið í mótið.
















