Þrír íslenskir atvinnustórmeistarar tefla erlendis þessa dagana. Við fjöllum um Hjörvar Stein Grétarsson frá Sochi í sérfréttum og minnum á Skákvarpið sem hefst um kl. 13 í dag.

Stórmeistarinn, Hannes Hlífar Stefánsson (2517) teflir alþjólegu móti í Prag í Tékklandi. Hann gerði jafntefli við tékkneska stórmeistarann Petr Haba (2436) í þriðju umferð og hefur 2½ vinning. Hann er í öðru sæti í flokknum.

Um er að ræða 10 manna lokaðan flokk. Meðalstigin eru 2388 skákstig og er Hannes stigahæstur keppenda.

Guðmundur Kjartansson (2496) teflir á minningarmóti um Najdorf sem fram fer í Varsjá í Póllandi.

Gummi hefur 2½ vinning eftir 3 umferðir. Hann er í 10.-28. sæti.

Um er að ræða 174 manna flokk og er Guðmundur níundi í stigaröð keppenda.

- Auglýsing -