Hjörvar Steinn Grétarsson (2603) þurfti að hafa fyrir hlutunum í skák dagsins á Heimsbikarmótinu í Sochi. Hinn hvít-rússneski Kirill Stupak (2485) fékk hættulegt frumkvæði í skák þeirra í dag þó þeir hefðu skipt upp á drottningum snemma.
Kirill fékk eitt dauðafæri á að fá góðan plús skv. tölvuforritum en í tímahraki lék hann hægfara leik og Hjörvar sigldi jafnteflinu í höfn.
Bráðabaninn hefst klukkan 12:00 á morgun, miðvikudag. Útsending á Skákvarpinu hefst aðeins fyrr enda hraðinn mun meiri.
Fyrirkomulagið er sama og í Íslandbikarnum og er bráðabaninn svona:
- Fyrst eru tefldar tvær atskákir (25+10)
- Sé jafnt verða tefldar tvær atskákir með skemmri umhugsunartíma (10+10)
- Sé jafnt verða tefldar tvær hraðskákir (5+3)
- Sé jafnt verður tefld bráðabanaskák. Hvítur fær 5 mínútur en svartur fær 4 mínútur. Viðbótartími 2 sekúndur á leik bætast við eftir 60 leiki. Svörtum dugar jafntefli til sigurs.
Skák dagsins:
Lítið var um óvænt úrslit í dag en þó margar spennandi viðureignir og töluverður fjöldi sem fer í bráðabana. Sterkstu skákmenn mótsins, þar á meðal Magnus Carlsen koma inn í mótið í næstu umferð. Hjörvar mætir Maxim Matlakov (2688) ef hann nær að knésetja Kirill Stupak (2485).
- Heimasíða mótsins
- Úrslitaþjónusta
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 12)
- Skákvarpið













