Alþjóðlegi meistarinn, Vignir Vatnar Stefánsson (2359), teflir á sínu öðru alþjóðlegu móti í Arandjelovac í Serbíu.
Í annarri umferð sem fram fór í gær gerði hann jafntefli við bandaríska FIDE-meistarann Balaji Daggupati (2377). Vignir hefur 1½ vinning og er í 1.-4. sæti.
Tvær umferðir fara fram í dag. Í þeirri fyrri teflir hann við aserska stórmeistarann Azer Mirzoev (2430) og í þeirri síðari við búlgarska alþjóðlega meistarann Momchil Petkov (2426).
Vignir teflir í þremur 10 manna lokuðum flokkum í Serbíu. Meðalstigin í öðru mótinu, sem nú er í gangi, eru 2425 skákstig. Vignir er næststigalægstur keppenda.
Czech Open er gangi í Pardubice í Tékklandi. Stórmeistararnir Hannes Hlífar Stefánsson (2517) og Guðmundur Kjartansson (2496) eru meðal keppenda.
Báðir unnu þeir í 3. umferð sem fram fór í gær stiglægri andstæðinga (2172-2247). Í fjórðu umferð sem fram fer í dag mæta þeir aftur stigalægri andstæðingum (2235-2237).
149 keppendur taka þátt í efsta flokki Czech Open og þar af eru 15 stórmeistarar. Mótið er töluvert fámennara og veikara í ár sem án ef má rekja til heimsfaraldurs Covid-19. Hannes er áttundi í stigaröð keppenda en Guðmundur sá ellefti.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 14)















