Kviku Reykjavíkurskákmótið fór af stað í dag en mótið er einnig EM einstaklinga í skák og því einstaklega vel skipað í ár.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra setti mótið en auk hennar fluttu Alexandra Briem frá borginni og Gunnar Björnsson forseti Skáksambandsins og varaforseti ECU stuttar ræður. Katrín lék fyrsta leiknum fyrir Gawain Jones.

Styrkleikamunur var nokkur í þessari fyrstu umferð af ellefu. Lítið var um óvænt úrslit en hinn ungi Hilmir Freyr Heimisson (2309) vann stórglæsilegan sigur á stórmeistara frá Ungverjalandi, Tamas Banusz (2631). Hilmir var að öðrum ólöstuðum stjarna dagsins. Hér er glæsileg sigurskák hans þar sem hann hreinlega tætti stórmeistarann í sig með svörtu!

Glæsileg skák hjá Hilmi

Flott skák hjá Hilmi og vonandi heldur hann þessum dampi í mótinu!

Næsti keppandi til að leggja stórmeistara var Martin Wecker (2195). Hann lagði Króatann Marin Bosiocic (2610) óvænt að velli. Einnig lá Tiger Hillarp Persson (2543) óvænt gegn Svisslendingnum Nicolas Kueng (2005). Að öðru leiti urðu úrslit eftir bókinni fyrir utan örfá jafntefli.

Íslensku stórmeistarnir sjö unnu allir sínar skákir.

Tómas Möller einbeittur
Þorsteinn Þorsteinsson fékk svart á margreyndan landsliðsmann frá Azerbaijan, Durarbayli.
Stefán Steingrímur einbeittur
Larua Unuk frá Slóveníu
Jóhann lagði Benedikt Briem
Hjörvar hafði sigur í sinni skák
Áskell fékk svart á tyrneskan landsliðsmann
Ivan Sokolov heldur úti skákskýringum og nýtur aðstoðar ýmissa meistara, Helgi Ólafsson og Þröstur Þórhallsson aðstoðuðu hann í dag.

Fjörið heldur áfram á morgun og hefst önnur umferð klukkan 15:00.

Útsending 1. umferðar:

Mótið á Chess-results

Heimasíða mótsins

Myndir frá 1. umferð

Skákir 1. umferðar á .pgn

- Auglýsing -