Ein af óvæntustu úrslitum í fyrstu umferð á Kviku Reykjavíkurskákmótinu – EM einstaklinga var sigur Þjóðverjans Martin Wecker (2195) á Marin Bosiocic (2610) frá Króatíu. Martin er augljóslega ekki þekktasti skákmaður í heimi en það er hreint ótrúlegt tilviljun að hann nái þessum úrslitum hér í fyrstu umferð. Hvers vegna? Jú…árið 2017 tefldi Martin Wecker á Reykjavíkurskákmótinu og komst í fréttirnar…en fyrir að vera öfugum megin við borðið!

Árið 2017 tapaði Martin Wecker í aðeins 11 leikjum gegn Ármanni Péturssyni (1227) sem þótti tíðindum sæta. Ármann fékk verðlaun fyrir bestu skák umferðarinnar og skaust upp á stjörnuhimininn í skákheiminum sem „local hero“ eins og hann var kallaður. Sjá frétt á mótsvef á ensku hér ( einnig Upprifjun með frábærum skýringum Helga Ólafssonar). Í kjölfarið fór Ármann út sem lærlingur hjá Chessbrahs sem eru í dag ein stærsta skákrásin á Twitch og njóta þeir gríðarlegra vinsælda.

Hér má t.d. sjá glitta í Ármann í einu af Chessbrah myndböndunum

Já…..en hvað með Martin Wecker? Hann var með 2134 elóstig og fór með skottið heim á milli lappanna frá Reykjavík árið 2017.

Svo lítið fór fyrir Wecker við myndatökur að greinarhöfundur á ekki einu sinni mynd af keppendum…þeir sjást úti í horni bakvið Þorstein Þorsteinsson á myndinni hér fyrir neðan!

Wecker og Bosiocic úti í horni!

Eitthvað hefur Wecker ákveðið að vinna í sínum málum og hann mætti til leiks á EM nú með 2195 elóstig…..og maðurinn gjörsamlega PAKKAÐI króatíska stórmeistaranum saman. Sjón er sögu ríkari…

Ritstjóri splæsti í Jútjúb myndband á ensku um þetta skemmtilega mál:

 

 

 

 

- Auglýsing -