Rússneski stórmeistarinn Anton Demchenko vann góðan sigur á Kviku Reykjavíkurskákmótinu en hann kom í mark með 8.5 vinning úr skákunum 11. Þjóðverjanum Vincent Keymer tókst með sigri í lokaumferðinni að ná Demchenko að vinningum en Demchenko tefldi við sterkari andstæðinga og telst því Evrópumeistari á oddastigum.
Sigur Demchenko er merkilegur sérstaklega fyrir þær sakir að hann er fyrsti stórmeistarinn sem er undri 2600 elóstigum sem vinnur þennan titil!
Mikil barátta var um efstu 23 sætin á mótinu þar sem þau gefa miða á Heimsbikarmótið. Héðinn Steingrímsson átti einn íslensku keppendanna möguleika á slíku sæti en hann varð að vinna í lokaumferðinni en það gekk ekki eftir. Sá þýski, Daniel Fridmans var of fastur fyrir og hafði betur að þessu sinni.

Helgi Áss Grétarsson endaði efstur Íslendinga með 7 vinninga. Helgi átti glæsilegan endsprett og fékk 3 vinningua úr síðustu 4 skákunum gegn skákmönnum með um 2600 elóstig að meðaltali.

















