Spennan er orðin mikil fyrir lokaumferðina á Kviku Reykjavíkurskákmótinu / EM einstaklinga. Baráttan er hörð á toppnum og fimm skákmenn eiga möguleika á Evrópumeistaratitlinum.
Efsta borðið skiptir miklu máli. Deac hefur hvítt á Demchenko. Ef Demcehnko vinnur er hann Evrópumeistari. Ef skákin endar með jafntefli er líklega að Demchenko vinni líka með bestu oddastigin. Ef Deac hinsvegar vinnur opnast ballið upp á gátt! Þá geta Keymer, Vocaturo og Sarana náð Deac að vinningum með sigri í þeirra skákum (Keymer og Vocaturo innbyrðis) og þá ræðst titilinn á oddastigum og Deac líklega stendur verst að vígi.
Baráttan um efstu 23 er ekki síðri. Líklegt er að skákir á borðum 4-7 endi með stuttu jafntefli þar sem keppendur þar komast örugglega áfram og hafa að litlu að keppa nema auka peningaverðlaunum. Skákmenn með 6,5 vinning eru hinsvegar í mun meiri óvissu. Aðeins örfáir af efstu mönnum þar geta verið öruggir með að jafntefli dugir þeim. Meirihlutinn þarf að vinna sína skák.
Meðal þeirra er Héðinn Steingrímsson sem fær svart á Daniel Fridman sem þarf að öllum líkindum einnig á sigri að halda! Þetta verður spennandi!
Skákskýringar í beinni með Ivan Sokolov og góðum gestum:
Sama streymi má nálgast á Twitch rásinni Reykjavik Open og einnig hægt að skoða það í Twitch Appinu á símum.
https://www.twitch.tv/reykjavikopen
Pörun efstu borða í 11. umferð

Þeir sem vilja skoða skákir hafa svo ýmsa möguleika.
Fyrir farsímanotendur mælum við með því að hlaða niður appinu FollowChess þar sem hægt er að fylgjast með flestum skákviðburðum heims í beinni.
Öll úrslit má svo nálgast á Chess-results

















