Ný alþjóðleg skákstig komu út 1. september sl. Hjörvar Steinn Grétarsson er sem fyrr langstigahæsti skákmaður þjóðarinnar, Helgi Heiðar Stefánsson er stigahæstur nýliða og Benedikt Briem hækkaði mest frá síðasta stigalista.

Topp 20

Hjörvar Steinn Grétarsson (2597) er langstigahæsti skákmaður landsins, Henrik Danielsen (2521) er næststigahæstur. Héðinn Steingrímsson (2519) og Jóhann Hjartarson (2519) eru jafnir í 3. sæti.

Topp 100

Nýliðar og mestu hækkanir

Helgi Heiðar Stefánsson (1527) er stigahæstur nýliða. Aðrir eru Arnar Breki Grettisson (1477), Kári Steinn Viðarsson (1227) og Jón Úlfur Hafþórsson (1183).

Benedikt Briem (+92) hækkar mest frá ágúst-listanum. Næstir eru Kristján Dagur Jónsson (+79) og Jóhann Jónsson (+55)

Nýliðar og mestu hækkanir

Stigahæstu ungmenni (u20)

Vignir Vatnar Stefánsson (2383) er stigahæsta ungmenni landsins. Í næstu sætum eru Hilmir Freyr Heimisson (2286) og Aron Þór Mai (2110)

Stighæstu ungmenni landsins

- Auglýsing -