Anton Demchenko er í oddastöðu fyrir lokaumferðina en hann er einn efstur með 8 vinninga fyrir lokaumferðina. Fjórir koma næstir með 7,5 vinning. Héðinn Steingrímsson á einn Íslendinga möguleika á að enda í topp 23 sem gefur sæti á Heimsbikarmótið.

Demchenko hafði hvítt á Vincent Keymer sem beitti Caro-Kann vörn. Demchenko fékk eitthvað örlítið betra tafl en Keymer fékk gott mótspil og braust í gegn.

30…Hxe2! var algjörlega málið hjá Keymer og í kjölfarið stóð hann til vinnings.

Nokkrum leikjum síðar var tölvumatið -8 sem þýðir kolunnið tafl. 36…Bd5 eða 36…Dd2 leiða til vinnings á svart.

Þess í stað náði Demchenko að verjast og náði í mikilvægt jafntefli, Keymer gæti hinsvegar hafa misst af Evrópumeistaratitlinum á grátlegan hátt. Hann á enn möguleika en verður að treysta á aðra í stað þess að hafa örlögin í eigin höndum.

Á öðru borði tapaði Rauf Mamedov sinni fyrstu skák á mótinu. Andstæðingur hans, Bogdan-Daniel Deac tefldi fína skák og kom sér í stöðu að tefla úrslitaskák í lokaumferðinni.

Þessi sigur kom Deac í 2. sætið með öðrum og fær hann hvítt á Demchnko og því í dauðafæri að stela Evrópumeistaratitlinum á lokasprettinum.

Keymer á eins og áður sagði fínan séns en til þess að vinna þarf hann að leggja Daniele Vocaturo í lokaumferðinni. Vocaturo er einnig með 7,5 vinning og er einn af fimm skákmönnum sem eiga möguleika á titlinum.

Vocaturo vann í umferð dagsins Hovhannes Gabuzyan frá Armeníu. Ítalinn þjarmaði að Armenanum stöðulega og vann sigurinn í drottningaendatafli.

Það var nokkuð fyndin staða nálgæt lokunum þegar hvíti kóngurinn var búinn að ferðast yfir í herbúðir svarta kóngsins að þvinga hann til uppgjafar!

Sá síðasti sem á möguleika á titlinum er Alexey Sarana. Sarana vann nánast á þrjóskunni einni vopna í skák sinni við Daniel Fridman. Í 60. leik var tölvumatið 0.00. Sarana vann samt skömmu síðar peð og var svo kominn með unnið þegar hann veiddi svarta hrókinn í gildru.

76.Rf2! og hrókurinn á h4 á ekki heimangegnt! Sarana fær svart á Mamedov í lokaumferðinni.

Héðinn Steingrímsson er nú efstur Íslendinga eftir sigur á Ungverjanum Banus. Banus þessi tapaði einmitt fyrir Hilmi Frey í fyrstu umferð.

Héðinn hirti peð sem Ungverjinn fórnaði í byrjuninni og hékk einfaldlega á peðinu. Héðinn lék þó einum furðulegasta leik mótsins í 34. leik, Kh3-h4!?

Líklega átti Banus að fá einhver færi í kjölfarið og loks fórnaði hann manni fyrir hættulega sókn. Héðinn hinsvegar reiknaði allt rétt og hélt stjórn á stöðunni og var á endanum einfaldlega manni yfir.

Í lokaumferðinni mætir Héðinn særðum Daniel Fridman með svörtu. Erfið pörun og ekkert nema sigur kemur til greina ætli Héðinn að ná inn á topp 23. Erfitt en geranlegt.

Flest augu voru á Helga Áss í umferð dagsins en hann var efstur Íslendinga. Hann virtist ætla ða komast ágætlega frá skák sinni við Antipov en varð á í messunni í endatafli og Antipov hirti vinninginn.

Guðmundur gerði fínt jafntefli við Abbasov, Hannes gerði einnig jafntefli en þeir Jóhann og Bragi töpuðu sínum skákum á sýningarborðum.

Skýringar umferðarinnar með Ivan og Helga

Lokaumferðin hefst klukkan 13:00.

Mótið á Chess-Results

Myndir frá 10. umferð

Myndir Þorsteins frá 10. umferð

- Auglýsing -