Íslensku liðið tapaði óvænt gegn finnsku sveitinni á EM landsliða í opnum flokki. Lengi leit út fyrir sigur en heilladísirnar snerust svo sannarlega gegn okkar mönnum. Kvennaliðið átti náðugan dag í yfirsetu.
Merkilegt nokk, þá kláruðust viðureignir dagsins í réttri röð, þ.e. 1. borð kláraðist fyrst og svo koll af kolli. Rennum yfir gang mála.
Á efsta borði tefldi Hjörvar mjög slappa skák miðað við mann af hans styrkleika. 1.b3 varð fyrir valinu sem upphafleikur og hvítur fékk ekki mikið úr byrjuninni en allt í lagi með stöðuna. 13.f4 virðist leggja of mikið á stöðuna og svartur er hreinlega kominn með betra tafl í 16. leik eftir að hann leikur …d5.
Staðan var það slæm að Hjörvar fór í vafasama mannsfórn í 19. leik til að reyna að fá spil en það gekk engan veginn upp. Slæmt tap og staðan orðin 1-0 fyrir Finnum sem er ekki það sem lagt var upp með!
Jóhann stýrði svörtu mönnunum og fékk á sig hið hvassa Saemisch afbirgði gegn Nimzo-indverjanum. Miðtaflið var hvasst og flókið en Jóhann reyndist sjóaðri í stöðunni og landaði sigri. Þarmeð var staðan orðin 1-1 og hinar stöðurnar litu vel út.
Framan af leit út fyrir að Helgi Áss væri að tefla módelskák í liðakeppni með hvítu. Hann var með hættulaust aðeins betri stöðu og veikleika sem hann gat „nuddað“ lengi fram eftir skák. Þegar viðureignin öll leit sem best út virtist Helgi geta nokkuð örugglega teflt upp á tvö úrslit, jafntefli eða tap. Í tímahraki náði Finninn óþægilegum ..c4 leik á réttum tímapunkti og var í raun ótrúlegt hvað svarta staðan sprakk út eftir það. Gefum mönnum samt kredit, Finninn tefldi þessa skák mjög vel!
Guðmundur tefldi eins og herforingi í fyrstu umferðinni og gerði það framan af skák sinni í dag gegn Kokkila líka. Guðmundur yfirspilaði andstæðing sinn og fékk kolunnið endatafl. Í úrvinnslunni fór hinsvegar eitthvað að hiksta og á nokkrum stöðum yfirsést Gumma einfaldasta vinningsleiðin og einhvern veginn varð til einstigi fyrir Finnann til að ná vægast sagt ósanngjörnu jafntefli. Svona getur skákin stundum verið, harður skóli!
Það er lítið annað að gera en bíta í skjaldarrendur. Íslenska liðið í opnum flokki mætir Litháum í þriðju umferðinni en stelpurnar fá sveit Ísrael sem þær hafa mætt nokkrum sinnum áður á þessum mótum.
Umferðir hefjast klukkan 14:00 að íslenskum tíma og Skákvarpið verður á sínum stað!

















