Tómas Björnsson og Þórleifur Karlsson eru jafnir og efstir að loknum 6 umferðum af 7 á Skákþingi Norðlendinga sem fram fer á Kaffi Krók á Sauðárkróki. Tefldar voru 4 atskákir á föstudeginum og tvær kappskákir í dag. Lokaumferðin er svo einnig með kappskákar fyrirkomulagi.
Tómas og Þórleifur gerðu innbyrðis jafntefli í þeirra skák en Þórleifur náði honum svo að vinningum þegar hann lagði Unnar Ingvarsson í sjöttu umferðinni á meðan Jón Arnljótsson hélt jöfnu gegn Tómasi.
Líklegast er að þeir endi efstir og jafnir en þeir mæta báðir mun stigalægri andstæðingum í lokaumferðinni.
Alls taka 10 skákmenn þátt á mótinu og er skákstjórn í öruggum höndum Ingibjargar Eddu Birgisdóttur.
- Auglýsing -
















