Alþjóðlegi meistarinn Davíð Kjartansson stendur best að vígi fyrir lokaumferð Skákþings Garðabæjar en hann hefur fullt hús, 6 vinninga af 6 mögulegum.
Tefldar voru atskákir á fimmtudeginum og kappskákir í gær í dag og svo í lokaumferðinni á morgun. Davíð er langstigahæstur keppenda og staðan því ef til vill ekki óvænt.
Í næstu sætum koma Jóhann Ragnarson með 5 vinninga og Ögmundur Kristinsson með 4,5 vinning. Jóhann stendur því best að vígi fyrir lokaumferðina að enda uppi sem Skákmeistari Garðabæjar.
Davíð mætir Jóhanni í lokaumferðinni á morgun. Nánar um úrslit á chess-results (sjá link neðst í frétt).
Skákir mótsins:
- Auglýsing -

















