Tómas Björnsson og Þórleifur Karlsson urðu efstir og jafnir með 5,5 vinning af 7 mögulegum á Skákþingi Norðlendinga sem fram fór á Kaffi Krók á Sauðárkróki. Tefldar voru 4 atskákir á föstudeginum og þrjár kappskákir yfir helgina.

Báðir unnu þeir sigur í lokaumferðinni, Tómas gegn Sindri Snær Pálssyni og Þórleifur gegn Arnari Smára Signýjarsyni. Næstur þeim félögum kom Andri Freyr Björgvinsson með 5 vinninga og svo þéttur hópur með 4 vinninga.

Verðlaunahafar

Myndir frá mótinu

Alls tóku 10 skákmenn þátt á mótinu og var skákstjórn í öruggum höndum Ingibjargar Eddu Birgisdóttur.

Mótið á Chess-results

Að loknu móti var einnig tekið hraðskákmót og tóku 8 af keppendum þátt í hraðskákinni. Tómas Björnsson varð hlutskarpastur með 6 vinninga en Þorleifur hlaut 5,5 vinning. Aftur varð Andri Freyr í þriðja sætinu.

Hraðskákin á chess-results

- Auglýsing -