Þá er komið að þriðju umferðinni á EM landsliða í skák. Karlaliðið þarf að stimpla sig inn og konurnar koma ferskar úr yfirsetu.

Lithháar eru aðeins fyrir neðan okkur í styrkleikaröðinni. Þeir eru aðeins stigahærri á efstu tveimur borðunum en við nokkuð hærri á neðstu tveimur. Verður jöfn viðureign sem vonandi fellur okkar megin!

Beinar útsendingar íslenska liðsins í opnum flokki

Kvennaliðið mætir nokkuð þéttri ísraelskri sveit. Efstu tvö borðin mjög reynslumikil og varamaðurinn Katkov hefur byrjar vel með 2 af 2. Liss hvílir í dag.

Beinar útsendingar kvennaliðs á Chess24

Umferðir hefjast klukkan 14:00 að íslenskum tíma

Opinn flokkur á Chess-results

Kvennaflokkur á Chess-results

Skákvarpið verður á sínum stað og hefst ca. 15:30

- Auglýsing -