Unglingameistaramót Taflfélags Reykjavíkur, sem jafnframt er Stúlknameistaramót T.R., fer fram sunnudaginn 14. nóvember í skákhöll T.R. að Faxafeni 12. Taflið hefst kl.13 og áætlað er að mótinu ljúki kl. 17.
Tefldar verða 7 umferðir eftir svissnesku kerfi með umhugsunartímanum 10 mínútur á skák, auk þess sem 5 sekúndur bætast við eftir hvern leik (10m+5s). Mótið verður reiknað til alþjóðlegra atskákstiga. Þátttaka er ókeypis.
Mótið er opið öllum börnum og unglingum, óháð taflfélagi eða búsetu, sem eru fædd árið 2006 eða síðar. Teflt verður í tveimur flokkum: opnum flokki og stúlknaflokki.
Verðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu sætin í opna flokknum auk þess sem efsti TR-ingurinn hlýtur titilinn Unglingameistari T.R. 2021. Verðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu sætin í stúlknaflokki auk þess sem efsti TR-ingurinn hlýtur titilinn Stúlknameistari T.R. 2021.
Til viðbótar verða veitt verðlaun fyrir efsta sætið í öllum árgöngum í báðum flokkum (opna flokknum og stúlknaflokknum), elsti árgangurinn er 2006 og yngsti árgangurinn er 2016 og yngri.
Núverandi Unglingameistari TR er Benedikt Þórisson. Núverandi Stúlknameistari TR er Batel Goitom Haile. Nánari upplýsingar um mótið 2019 má nálgast hér. Síðastliðið ár (2020) féll skákmótið niður vegna þáverandi reglna í Covid faraldrinum.
Skráning í mótið fer fram á hefðbundnu rafrænu skráningarformi. Einnig má finna skráningarformið á skak.is.
Skákstjórar í mótinu verða þau Sigurlaug Regína Friðþjófsdóttir og Torfi Leósson.
Meðan á mótinu stendur bera skákstjórar grímu.
Vegna samkomutakmarkana verður hámarksfjöldi keppenda takmarkaður við 48 og foreldrum ber að skila og sækja við útidyrnar. Gætt verður vel að sóttvörnum og loftað út (gott að vera í hlyrri peysu!) . Engin veitingasala og börnin því hvött til að koma með nesti!

















