Lítil breyting í Dubai. Enn er jafntefli. Í fimmtu skák Ian Nepomniachtchi (2782) og Magnúsar Carlsen (2855) var sem fyrr tefldur spænskur leikur þegar þegar Nepo hefur hvítt. Heimsmeistarinn breytti af þessu fyrr út af þegar hann lék 8…Hb8 í stað 8…Bb7.
Rússinn fékk smá frumkvæði en aldrei nægjanlegt til að geta almennilega saumað að Norðmanninum. Svo fór að jafntefli var samið eftir 43 leiki.
Magnus Carlsen: „Obviously I am not thrilled with the game. Unless you count Ra2-Ra1 at the end, I did not make a single active move, that’s not ideal. But the result is fine.“ #CarlsenNepo pic.twitter.com/5BxRbwd3VZ
— International Chess Federation (@FIDE_chess) December 1, 2021
Sjá nánar frétt á Chess.com.
Frídagur er á morgun. Sjötta einvígisskákin verður tefld á föstudaginn.
- Heimasíða einvígisins
- Beinar útsendingar (FIDE) – Anand og Muzychuk
- Beinar útsendingar (Chess24) Polgar og Giri
- Beinar útsendingar (Chess.com) Caruana og Yifan
- Beinar útsendingar (Chess24) Howell og Houska
















