Vignir að tafli á Íslandsmóti skákfélaga. Mynd: Ómar Óskarsson.

Alþjóðlegi meistarinn Vignir Vatnar Stefánsson (2465) tefldi tvær skákir á „túrbó“-áfangamóti í Dyflinni á Írlandi í gær. Í gær hlaut 1½ vinning í umferðunum tveimur. Viggi hefur 6 vinninga og þarf aðeins 1 vinning í síðustu tveimur umferðunum til að krækja sér í sinn fyrsta stórmeistaraáfanga.

Í fyrri skák gærdagsins vann hann írska alþjóðlega meistarann Conor E Murphy (2431).  Enn á ný sýndi Viggi mikla seiglu. Fékk eilítið betra tafl en setti andstæðinginn í tímapressu og bjó til sífelld vandamál fyrir hann. Svo fór að Murphy fann ekki bestu leikina og Vignir vann góðan sigur! Í seinni skák dagsins gerði okkar maður örjafntefli við spænska stórmesitarann Jose Conzalez Garcia (2466). 

Tvær umferðir fara fram í dag. Sú fyrri er rétt nýhafin. Þá teflir Vignir við Írann Peter Cafolla (1976).  Í seinni skákinni mætir hann írska alþjóðlega meistaranum David Fitzsimons (2337).  Eins og fyrr sagði þarf Vignir einn vinning til að tryggja sér áfanga að alþjóðlegum meistaratitli. Skákir dagsins hefst kl. 9 og 14.

Mótið fer fram 2.-6. janúar. Tíu keppendur taka þátt og tefla allir við alla. Meðalstig mótsins eru 2368 skákstig. Til að ná stórmeistaraáfanga þarf 7 vinninga af 9 mögulegum. Vignir er næststigahæstur keppenda.

- Auglýsing -