Stórmeistararnir Guðmundur Kjartansson (2540) og Hannes Hlífar Stefánsson (2520) gerðu báðir jafntefli í sjöttu umferð EM einstaklinga sem fram fór í gær. Gummi við armenska stórmeistarann Haik Martirosyan (2633) og Hannes við tyrkneska stórmeistarann Mustafa Yilmaz (2624).
Félagarnir hafa báðir 4½ vinning og eru í 7.-32. sæti. Gummi í því sjöunda á oddastigum en Hannes í því 28. Þýski stórmeistarinn Matthias Bluebaum (2642) er efstur með 5½ vinning.

Sjöunda umferð fer fram í dag og hefst kl. 13. Franskir stórmeistar eru andstæðingar dagsins. Hannes mætir Jules Moussard (2630) og Gummi Maxime Lagarde (2626).
Alls taka 317 skákmenn frá 40 löndum þátt í mótinu. Þar af eru 114 stórmeistarar. 20 efstu sætin gefa keppnisrétt á heimsbikarmótinu í skák á næsta ári. Hannes er nr. 94 í stigaröð keppenda en Guðmundur er nr. 133.
















